Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að búa í höfuðborg Íslands, Reykjavík eins og ég fékk að kynnast í morgun. Það skal þó tekið fram að dvöl mín í Reykjavík hefur hingað til gengið áfallalaust fyrir sig en í morgun brá mér heldur betur í brún.
Ég vaknaði fyrr enn venjulega eða um sjö leytið. Ég vaknaði við einhverjar ryskingar og dólgslæti á stigaganginum í húsinu sem ég bý í, en sjálfur bý ég á miðhæð hússins. Ég gerði mér fljótlega grein fyrir að hér var ekki um íbúa hússins að ræða og fékk strax þær grunsemdir að ölvaður maður hefði hreiðrað um sig á annars hlýjum stigagangi hússins. Fljótlega fór mig nú ekki að litast á blikuna enda voru mikil læti og frekar ógeðfeldar stunur sem fylgdu í kjölfarið. Ég henti mér því í sloppinn minn og var við það að fara að hringja í lögregluna þegar ég tók eftir því að nú var þessi ógæfu maður að reyna að komast inn í íbúðina mína, en ég mundi að hún var ólæst enda á maður nú ekki von á að vakna við þennan ófagnað á þriðjudagsmorgnum.
Ég gerði mér ljóst þarna að ég yrði að grípa til örþrifaráð og hljóp fram í eldhús og greip fram barefli og lagðist til atlögu. Ég reif upp hurðina og sá að maðurinn var kominn hálfa leið upp stigann að íbúðinni á efri hæðinni. Ég öskraði á hann að skildi koma sér út eða ég myndi hringja á lögregluna. Þessi ógæfumaður var greinilega brugðið að sjá mig þarna hálfberan að ofan með bökunarverkfæri í annarri hendi og símann í hinni. Hann svaraði aumkunarlega fyrir sig og tjáðist þurfa að pissa en hunskaðist skömmustulega út.
Sjálfur stóð ég stjarfur eftir enda ekki á hverjum degi sem maður þarf að ógna öðru fólki með barefli. Ég náði ekkert að sofna aftur en það sem vakti mesta athygli mína var að hvorugur af hinum tveimur meðleigjendum mínum vöknuðu við allan þennan ófagnað. Meðleigjendur mínir misstu því af því þegar ráðist var inn á heimili okkar og einnig var ekki mikið um hreyfingu á efri hæð hússins.
Niðurstaðan er því sú að maður er hvergi hólpinn fyrir innbrotum ógæfu manna hvort sem maður býr í 101 eða 104. Það versta í þessu öllu saman var að ekki náði ég að sofa út eins ráðgert hafði verið og þykir mér þarna af mér rændur svefninn. Er hægt að kæra það?
Ég ætla að helga minni fyrstu blogfærslu um
stúdentapólitíkina en Röskva sigraði Vöku í kosningum til stúdenta- og
háskólaráðs með afar naumum mun.  Alls
kusu tæplega 35% þeirra sem voru á kjörskrá og var kosningasókn undir
meðallagi. Alls fékk Röskva 1692 atkvæði til stúdentaráðs meðan Vaka fékk 1686.
Því munar ekki nema sex atkvæðum á fylkingum og prósentumunurinn 0.18%. Í fyrra
sigraði Röskva með 23 atkvæðum og fullyrði ég að stúdentakosningarnar eru mest
spennandi kosningar sem fyrirfinnast hér á landi. Það sem kannski er aðalástæðan
fyrir því er að engar skoðanakannanir eru framkvæmdar meðan kosningabaráttan
stendur sem hæst.
Kosningabaráttan
að þessu sinni var e.t.v. harðari en oft áður og töluverðir pústrar á milli
fylkinga.  Það er hins vegar ljóst að þessar
fylkingar verða þó að grafa stríðsöxina og starfa saman að hagsmunabaráttu
stúdenta til að árangur náist. Sjálfur starfaði ég í kringum kosningabaráttuna
hjá Vöku og viðurkenni fúslega að það voru mikil vonbrigði að tapa þessum kosningum.
Það er annað hvort allt eða ekkert í tveggja flokka kosningum og þurfum við
Vökuliðar því að starfa í annað árið í röð undir meirihluta Röskvu.
Í dag eru þrjár
og hálfar launaðar stöður við SHÍ og á síðasta kjörtímabili voru einungis Röskvuliðar
sem gegndu þeim  stöðum. Ekki þykir
líklegt að breyting verði á þetta kjörtímabilið þrátt fyrir að umrætt hafi
verið meðal Vökuliða að eðlilegt væri að skipta launuðum stöðum í samræmi við
kosninganiðurstöðu. Samkvæmt lögum SHÍ á stúdentaráð skal ráðið í stöðu
Framkvæmdastjóra, Ritstjóra og Lánasjóðsfulltrúa og  skal SHÍ velja úr hópi umsækjenda. Það er mín
skoðun að í þessum stöðum ættu að starfa aðilar sem ekki eru tengdir pólitískum
stúdentabandalögum.
Það gerðist í
þessum kosningum að Röskva einokaði skrifstofu stúdentaráðs og formaður og
framkvæmdastjóri SHÍ, sem eru báðar úr Röskvu, bönnuðu Vilborgu Einarsdóttur,
fulltrúa Vöku í jafnréttisnefnd Stúdentaráðs, að vera á skrifstofu ráðsins, sem
á þó að vera sameiginleg vinnuaðstaða fyrir þá sem starfa á vegum Stúdentaráðs.
Vilborg ætlaði að vinna í skýrslu um aðgengi fatlaðra við HÍ og var rekinn út
með látum. Greinilegt er að fulltrúar Röskvu voru þarna að nýta sér aðstöðu
sína í meirihluta og voru að stjórna kosningabaráttu sinni frá skrifstofu
stúdentaráðs. Jafn ólýðræðisleg vinnubrögð eru vandfundin hér á landi og vekur upp margar spurningar.
Sex atkvæða
meirihluti mun því stjórna SHÍ á næsta kjörtímabili og verður fróðlegt að
fylgjast með hvernig þessar tvær fylkingar ná að starfa saman á komandi
starfsári.